Greddupadda!

Is it you or is it just boring in here?

11.11.2008 22:28:34 / paddan

Að vera einn er ekki eins og að vera einmanna

Þar sem ég er yndisleg kærasta og viðurkenni (kannski ekki fúslega þó) að kærastinn minn muni aldrei verða fullorðinn þá gaf ég honum gjöf á mánudaginn, af minni vífrægu góðsemi. En það var Transformerskallinn Optimus Prime sem er svo haganlega úr garði gerður að hægt er að breyta honum úr kalli í bíl og tilbaka (sérstakar þakkir til leikfangadeildar Hagkaups). Nú, ég varð auðvitað að prufukeyra græjuna og tókst, með mikilli þrautseigju og (ó)þolinmæði að kuðla honum í frumeindir. Þetta er dót fyrir 4ra ára og eldri...ég er svo þroskuð...

En eins og þið sjáið er meistarinn mættur aftur á svæðið -amk svona smá...- en það hefur varla farið framhjá haukfráum augum dyggra lesenda minna að örlítill dvali hefur verið í bloggmaníunni. Myndu sumir jafnvel ganga svo langt að segja leti. Ég skammast mín!
En það er svona þegar maður er að festast í vinna-borða-sofa rútínunni. Sérstaklega sofa partinum-I LOVE IT!- þá þarf bara eitthvað að sitja á hakanum og ég er hrædd um að bloggið hafi hreinlega dottið af! Svei mér þá...
En annað við þetta tilbreytingalausa líf er að ég hef ekkert að blogga um. Nema auðvitað endalaus uppátæki afkvæmana en komon, það er bara hægt að nenna að x-lítið að lesa um börn annarra. Jah, jú ég gæti auðvitað fari að segja ykkur frá ævintýrum mínum í vinnunni en ég er hrædd um að þá myndu kallarnir í hvítu sloppunum verða ansi fljótir að mæta á svæðið og loka okkur inni-til varnar almenningi.
En já, hérna er komin fín færsla, Heimir er komin til mín og ég er að hugsa um að koma mér líka....uppí rúm. Ahhhh gott að sofa!
ÉG horfi alveg öfundunaraugum á Maurice!
Fínt að vera köttur...

Jæja, það er vonandi að maður nenni að gera þetta aftur fljótlega:)
L8er yall.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 03:15:34 / paddan

If I could aproach you or even get close to the scent that you left behind, I'd be fine!

Jæja, hæ hó og jíbbíjeij....það er kominn 17.júní. Og til hamingju með það allir íslendingar. Jah, tæknilega séð er ekki 17.júní, hann er ekki kominn fyrr en maður er loðinn í munninum af sykri, búinn að missa að minnsta kosti tvær mjög dýrar gasblöðrur útí rokið (það er alltaf rok þennan dag, ef það er logn, þá er mígandi rigning) og kominn með suð í eyrun af blæstri lúðrasveita.
En þetta er skemmtilegur dagur engu að síður, ef maður er ekki á bíl og er að leita að stæði:)
Við Aris erum bara tvær núna, Ísis er hjá ömmu sinni á Selfossi í góðu yfirlæti og kemur ekki fyrr en á föstudaginn! Lúxus! Heimir og Krisssi tóku síðan upp á því að fara hringinn á mótorhjólum svo að við erum bara tvær kellur í kotinu- þangað til á morgun. Þannig að planið er að fara að sjá Brúðubílinn, sem er ástæða Arisar fyrir lífið sjálft og jafnvel kaupa eitthvað algjörlega gagnlaust drasl, eins og gasblöðru, candyfloss eða úh! muniði eftir risastóru snuddunum!! Mmmm! En....þær voru samt eiginlega ekkert góðar, bara svona....hefðin:)

Hvað er annars að frétta....jújú, maður er byrjaður að læra fyrir mótorhjólaprófið. Úje! Mín bara að verða riddari götunnar eða.....einhver kvenkyns útgáfa af riddari:) Það er bara gaman, við Helgi erum í þessu saman. Þetta verður óhugnalega gaman. Var í ökuskólanum og sjitt! Gaurinn sem kenndi okkur er s.n.i.l.l.i.n.g.u.r! hehe maður lá bara í hláturskasti allan tíman:) ótrúlega fyndinn gaur.
En nú tekur við að fara í skriflega prófið og síðan á hjólið og síðan bíngbaddabúmm! Komin með próf í ágúst:) það er amk svona planið:D

Er að gera Rakeli geðveika á tali um mótorhjól og mótorhjólafatnað og undirstýringu og mótvind og hliðarvind og crashprotecters og allt sem mér dettur í hug:D Talandi um góða vinkonu, hún nennir acctually að hlusta á mig:)
Fyndið samt að við vinkonurnar erum allar með sitthvort áhugamálið. Ég er, hafi enginn tekinn eftir því, kominn með gríðarlegan áhuga á mótorhjólum. Rakel er í skrappinu (og það er ofsalega flott hjá henni! Vissi ekki að frú Tíuþumalputtar ætti þetta í sér, voða sætt:) ) og Sigga er í hestunum. Bylgja er...ekki með áhugamál held ég:) en hún hatar mótorhjól svo að við eigum oft afar athyglisverðar samræður:D I love her still:)

Anyway, það er spurning um að fara að sofa, við erum að tala um að klukkan er meira en 3! að nóttu til! Jeminn!
Veit eiginlega ekki afhverju ég er að þessu, það les aldrei neinn bloggið mitt:S

l8er


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 23:30:29 / paddan

It does'nt matter where it hits, nothing will survive that bacteria.

Ömm, mér leiddist:)
Heimir er frammi að horfa á Alien vs Predador 2 og ég er svona að hlusta á hana. Eins mikið og ég elska Predador myndirnar mun ég seint teljast vera Alien fan, svo að hann er að horfa á hana, segir mér síðan hvort að hún sé nokkuð mjög ógeðsleg og síðan horfi ég ef svo er ekki:) Las nefnilega dóm um hana þar sem gagnrýnandinn gekk út þegar það kom mjög blóðugt atriði á fæðingardeild. Ég er ekki viss um að ég hafi taugar í eitthvað þessháttar.

Ég var að spá, ég kíki nú stundum á barnaland.is eða er.is eins og það er víst núna. Og þar eru söludálkar, getur selt allt frá fatnaði til íbúða þarna. Anyway, alltaf þegar ég er að skoða þetta stendur: Vila bolur til sölu, notaður 1xsinni" "buxur úr 17, mjög lítið notaðar" "Skór nr 38, ekta leður, hafa verið notaðir max 3x sinnum" sko, ég veit ekki um ykkur en ef ég kaupi mér föt þá nota ég þau svona yfirleitt á regular basis, og ef ég eignast ný föt nota ég þau oft oft oft áður en ég fæ leið á þeim:) Þá er ég að sjálfsögðu ekki að tala um kjóla og svoleiðis, ekki beint fatnaður sem maður rýkur í á mánudegi, heldur bara svona venjuleg föt. Lendið þið mikið í þessu? Kaupa ykkur föt og nenna síðan ekki að nota þau?

Annars er ég mjög gjörn á að tína fötum, hef til dæmis keypt mér 3 sparks peysur en ég á enga. Ég átti forláta nærfatasett sem ég hef ekki séð í mörg ár (hvað sem varð nú um það) bláan bol átti ég en ekki lengur. Þetta virðist hverfa:)

En já, það er gaman í vinnunni þessa dagana. Ég er komin með smá auka á mig, þeas ég fer nú "rúntinn" svokallaða í fyrirtækinu, þá rúnta ég í góðum fíling um allan bæ fyrir hádegi og kem síðan í vinnuna:) voða fínt sko. Ég er alveg að fara að muna þetta:D

Svo er ég líka farin að vinna bara hálfan daginn, eða svo gott sem. Er farin að hætta barasta klukkan hálf 5 í staðinn fyrir 6. Kemur þetta aðeins af því að ég þarf að sækja stelpurnar á leiksskólan. En auðvitað minnka launin mín skammarlega mikið á þessu uppátækim, svo að ef einhver veit um vinnu handa mér, ca frá 9-hálf 5 með yfir 200þúsund kjéll á mánuði á bara count me in and show me the money!

Vá ég er í akkurat engu bloggstuði en samt næ ég að koma svoleiðis langlokunum úr mér að það telst vart eðlilegt.
en ég er hætt núna
l8er ppl

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 21:33:50 / paddan

It's oh so quiet...ssshhhh sshhhh

Bored 
    
bored 
        
bored 
            
bored 
            bored
 
                bored 
                    Bored
 bored
 
bored

bored
 

bored
 
bored


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 10:11:19 / paddan

Would you give up or try again, if I hesitate to let you in?

Jamm, skemmtilegt lag:)

Ég er í fríi í dag! JEIJ! Mikil gleði því að auðvitað var frídagður í gær svo að ég fæ langa helgi! JEIJ!

Það var mjöööög gaman í gær! Fórum í hjólagönguna, vaaaá hvað það var gaman! Mikið af hjólum og rosa stemming. Ég upplifi mig alltaf svo svala þegar maður er í þessum hóp, enda gerist fólk ekki flottara en íklædd leddara (eða gortex) að krúsa á þessum elskum!

Síðan náðum við í stelpurnar sem voru í kaffi hjá Eflingu með mömmu minni og pabba og rukum barasta uppí Heiðmörk með Rakel, Ómari, Elísabet, Helga, Krissa, Árna, Siggu og Andrési. Þvílíkt gaman. Vorum í fótbolta og grilla og rosastuð til 9 um kvöldið:)
Þurfum endilega að endurtaka þetta:)

Eina sem hefur skemmt soldið fyrir mér er staðreyndin að ég er staurblind! Fékk vitlausar linsur hjá kerlingarBEYGLUNNI á miðvikudaginn og fattaði það ekki fyrr en ég setti þær í mig í gær! Svo að ég er beisiklí að bíða eftir því að það opni hjá þeim og arka síðan af stað(get ekki keyrt, alveg staurblind), alveg öskubrjáluð og heimta nýjar linsur! Ekki versla við Gleraugnabúðina í mjódd, það er ömurleg þjónusta þarna! Ekki bara þetta heldur líka margt annað!

Svo að núna þarf ég að halla mér svo langt að skjánum að ég er næstum komin í gegnum hann núna:) kannski það væri bara einfaldara að taka það upp að nota gleraugu aftur....nah! Miklu sætari svona;)

Ég veit að ég ætti eiginlega að eyða deginum í að þvo þvott og taka til (the húsmóðir I am) en það er svo æðislegt veður að ég nenni því engan vegin! Ístaðinn ætla ég í klippingu og fara í bæinn með stelpunum og fara á Tattoo69....jebb, mikið að gera bara. Svo ætlar Einar víst að taka stelpurnar um helgina svo að ég er barasta í fríi!
Það er eitthvað plan að fara til hennar Bylgju á hjara veraldar (Bifröst) og fara á djammið þar(jeij, ég drekk nefnilega svo mikið) en svo var rakel að tilkynna mér að hún er að veraða veik svo að það er spurning hvað verður úr því fyrst að fyllerísforinginn er dottinn út.:)

Sumarið er svo sannarlega komið! Búin að vera þessi líka bongóblíða í viku or sum! Versta við þetta er að þá eru röndóttu vinkonur mínar komnar af stað!UGH! I hate them!

En já, að er víst búið að opna þarna í þessari búð svo að það er best að fara að æsa sig.:)

l8er ppl!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 23:49:37 / paddan

Pop that bottle now, drink it up now

Oh já, ég veit. Ég hef verið svo afspyrnulöt að skrifa á bloggið að ég er mest undrandi á að hafa ekki verið lýst látin af bloggsamfélaginu. En here goes, samt eiginlega bara afþví að ég hef ekkert að gera á meðan ég er að reykja:)

Ætla að byrja á því að óska Merlin til hamingju með afmælið. 27 and counting:)

Hvað er að frétta? Ekkert, same job, same boyfriend, no new kids.....same old same old.
Fór næstum uppá slysó í dag þegar að litlan náði að klemma sig svo svakalega.Hitti fjölskyldulækninn (mamma) sem úrskurðaði að ekki yrði læknis þörf:) Svo að það reddaðist allt að lokum:)
Hvað er annað að frétta...
Jah, ég hef afmeyjast í facebook æðinu, búin að vera þarna í nokkra mánuði og er enn ekki farin að kunna á þetta system:) en þetta er alvarlega ávanabindandi engu að síður! Síðasta laugardag stóð ég sjálfan mig að því að vera að gera akkurat ekki neitt nema að eyða tíma þarna til klukkan hálf 5 um nóttina! Holy kræst!

Ég veit ekki hvort að það eru fleiri svoleiðis en ég er amk þannig að ef ég horfi á Chacky Chan mynd þá langar mig ofsalega mikið að slást (við Anton frændi minn eigum ódauðleg moment þar sem við endurlékum atriði úr slíkum myndum) og ef ég horfi á greenpeace mynd langar mig að fara út að faðma tré og skamma fólk sem endurvinnur ekki hvert einasta snitti sem til fellur á heimilinu. Núna var ég að horfa á The Streets 2 held ég að hún heiti, einhver svaðalega urban dansi mynd, þar sem lúðarnir (sem eru btw hópur af fallegu fólki sem dansar ofsalega vel) vinna auðvitað. Núna langar mig mest að skella mér í magabol og mjaðmabuxur og hrista skankana úti í rigningu við fögnuð viðstaddra. En ætli það yrði ekki frekar hringt á lögguna og tilkynnt um drukkna fáklædda konu að hrista vömbina og láta lítil börn gráta...
En já, nenni ekki meira, ætla að koma mér í sturtu áður en ég fer að hátta mér uppí rúm.
Æjá, gleðilegt sumar:) Það er víst komið:)

L8er yall





» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 12:08:34 / paddan

komin með nýja síð

Komin með nýja síðu, www.blog.central.is/nacaz

see yall there;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 23:54:43 / paddan

A sound so sweet, I thought I heard the shuffle of angels feet.

Sko, núna er ég með mjög góða afsökun fyrir bloggleti:a)ég er búin að vera að vinna brjálæðislega mikið og b) algjört andleysi hefur hrjáð mig mjög og gerir enn. En ég skal reyna að gubba einhverju upp úr mér hérna.

Jólastúss (lesist:stress) í hámarki. Eg er nú samt svo heppin að vera búin að nánast öllu. Nokkrar gjafir sem á eftir að pakka og that´s about it. Á reyndar eftir að púsla saman gjöfinni til maogpa. Stressið náði samt smá tökum á mér í síðustu viku. Ég þurfti að panta eina gjöf frá Langtíburtistan og hún átti að koma með pósti en ekkert bólaði á kvikindinu. En síðan kom hún á mánudaginn. Hjúkket.

Vinnan já, það er GEÐVEIKI! Ég held að á síðustu dögum hafi ég séð fleiri jakkaföt en Sævar Karl hefur gert allt sitt líf!

Jólasveinarnir hafa týnst til byggða. Ísis hefur fengið heimsókn frá þeim öllum-hingað til-við mismikinn fögnuð. Hún hefur yfirleitt fengið nammi frá körlunum en nú brá svo við að í morgun voru vettlingar í skónum. Mín setti bara upp fýlusvip og tilkynnti að sveinki hefði gleymt namminu. Frek? Naaaah....

Fyrir utan óteljandi frekjuköst gengur allt sinn vanagang hérna. Lína er búin að hertaka sófann minn það sem hún og Hallli eru hætt saman. Bömmer. Sko, að þau séu hætt saman, ekki að hún sé að gista hjá mér:) En hún og Rakel eru komnar með íbúð og eru að fara að flytja í hana. Ætla þær að flytja sig um set, alla leið í Asparfellið. Sem er svalt. Allar komnar aftur í ghettóið. Geturu sagt "nostalgía"?! Partý hjá eim um áramótin. Sem ég mun líklega ekki geta komist í því að Einsi er ekki aaalveg að standa sig. Svo að ég verð með stelpurnar-eins og alltaf. En það skiptir ekki máli, þær eru hvort sem er....naaaaah ég ætla ekki að segja það á opnum vef:)

Og já, HUGE news! Allir sem þekkja mig vita að mér þykir undurvænt um alla í fjölskyldunni minni og að við erum "like-this" og á áramótunum komum við öll saman og gerum okur glaða nótt, nema Unnar, hann hefur alltaf verið á sjónum. En nú verður breyting á því að Unnar verður í landi og ég verð hjá Heimi. Oh my...það verður spennó að sjá:) Svo fékk ég símtal frá pabba hans áðan þar sem mér og stelpunum var boðið í mat á annan í jólum:) ég held að þetta verði bara snilld, ég, úberfeimna manneskjan-já ég er feimin í návist fullorðinna! En sem betur fer eru fjölskyldur okkar alveg jafnklikkaðar svo að mér á örugglega eftir að líða eins og heima hjá mér .Jólunum verður að sjálfsögðu varið hjá mömmu og pabba, enginn fær mig þaðan! Ekki einu sinni mamma og pabbi:)

Fleiri fréttir...ég hef enn ekki klest á neitt. Ojá, ég er komin með bílpróf og nei Merlin, ég þarf ekki að keyra með hazard ljósin á. Það er ekki kominn mánuður síðan ég fékk prófið og ég get samt ekki skilið hvernig í ósköpunum ég fór að án þess! FRELSIÐ MAÐUR! Maður hefur meira að segja lent í driver hlutverkinu og það var bara gaman. Verst að ég er orðin einhver drum&base mella svo að flestir mínir vinir þurfa að þjást, tónlistarlega séð, í bílnum mínum:)

En ég verð að fara að sofa núna. Vakna snemma, vinna mikið, seint heim. Mikil gleði...

Og ef ég skyldi ekkert blogga:

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

Og við Merlin vil ég segja: Bensvelk Eorick;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 12:36:46 / paddan

Touching you makes me feel alive and touching you makes me die inside

Ojá, ákvað að hafa eina auðvelda núna eftir þessa "ekki-alveg-jafn-erfiðu-og-ég-hélt-að-hún-yrði" tónlistargetraun síðustu viku.

Eina ferðina enn er ég að vinna, en núna hugsaði ég þó fyrir því að ég kom aðeins fyrr svo þetta verða vonandi fleiri en fjórar málsgreinar.

Ég hef komist að mikilvægri niðurstöðu, sem ég á von á að fá Nóbelæinn fyrir og þakkir margra raunmæddra húsbænda. Í viðtölum við konur á öllum aldri (vinkonur mínar á aldrinum 21-21og1/2 árs) þá hef ég komist að því að hægt er að virkja greddu í húsverk! Ekki furða að allar perfect húsmæður séu svona kynkaldar! Þannig að mitt ráð er: hafið bara allt í drasli (og ég vil ekki sjá eitt einasta komment um ástandið á mínu heimili).

Það er laugardagur, vissuði það? Ég var bara í chillinu í gær. Fór að horfa á video með Heimi og þá komst hann að því að ég hef aldrei séð Underworld. Honum fannst það ekki alveg ganga upp (the vampire-fan I am) svo að hann stökk og leigði hana bara.

Stóóóóór mistök!

Ég hefði getað tuðað stanslaust alla myndina! Djííííses krææææst! Hvað var fólk að pæla? Where to begin, where to begin...

Í fyrsta lagi er ömurleg tónlist í myndinni. Það útaf fyrir sig sökkar, en flottar vampírur hefðu alveg getað bjargað því. En nei, eina flotta við þessar vampírur var Latex-búningurinn sem Serena var í-ásamt kjólnum sem blondínan var í.

Vampírurnar: GÁTU EKKI FLOGIÐ! Er það ekki yfirleitt talinn vera stærsti kosturinn við það að vera vampíra, að geta svifið um loftin blá?! 
Vampírur OG varúlfar: notuðu high teq BYSSUR! Eina sem maður sá þarna af viti var eitt skitið sverð og svo afskaplega lekkert svipur á einum stað. That's it. Reyndar skondið að það voru notuð alveg eins skothylki í allar byssurnar, hvort sem það voru rifflar eða skammbyssur og þá af mismunandi tegundum. 
og hér kemur það sem pirraði mig mest: VAMPÍRURNAR SPEGLUÐUST! ARGH! Ég hefði getað sparkað í mann og annan þegar ég sá það! Er það ekki Rule no.One í Vampíru bransanum að þær speglast ekki?! I BELIVE IT IS!

Bölvað bull!

Og svo þurfti að vera voða rómó ástarsaga og vondi kallinn varð góður og góði kallinn reyndist vera vondur og góði góði kallinn reyndist vera samviskulaust kvikindi og ég veit ekki hvaða og hvaða fyrirsjáanlegu plott voru þarna í gangi.

Reyndar, eitt hrós; það var soldið kúl hvernig þeir blönduðu tegundunum saman, þetta er reyndar svona svipað og ef ég myndi reyna að eignast barn með rollu en HEY! hvað virkar ekki í bíó right?
En tvær pælingar: a)ef að maður blandar saman vampíru og varúlfi og fær út semi human með langar tennur og svartan feld, fær hann þá ekki gallanna frá þeim báðum? Sumsé þolir ekki sól, hvítlauk, holy water og holy symbol og fleyga og hvað og hvað eins og vampírur og ekki silfur eins og varúlfur? og b)Afhverju voru engir kvenmenn varúlfar? Kynjamisrétti í gangi?

Ókei, ókei, búin að tjá mig nóg um þessa sökkí mynd, en núna verð ég að sjá númer tvö-til að athuga hvort að hún sé jafnléleg.:)

Hvað er svona annars að frétta af mér...jah,ekki neitt barasta, aldrei þessu vant. Finn alveg hvernig jólafílingurinn er að læðast upp að mér-en það gæti líka bara verið að mig langi í sígó.

Æji, þetta hraun yfir Underworld fór alveg með mig, hef enga orku lengur:)

En ég er með tilkynningu til allra þeirra sem eru með mér í Order of massive killing osfrv: ÉG VIL FARA AÐ SPILA D&D!  Ég er komin með fráhvarfseinkenni og græt mig í svefn á hverju kvöldi yfir vesalings öflugu köllunum mínum sem að liggja bara og rykfalla og fá ekki að gera neitt af viti-eins og að drepa monsters- og einn þeirra er meira að segja fastur í einhverju heví dungeoni með bölvaðan stein sem á að gera hann geðveikan en hvað? Hvenær fæ ég að vita hvort að hann sé geðveikur? ALDREI!?! Eg er að verða æst hérna:)

en þangað til þetta lið getur farið að koma sér saman þá legg ég bara indexið á öllum bókunum á minnið-eða CR á öllum skrímslum í MM, eða á hvaða blaðsíðu XP-taflan er, eða öll cursed items í DMG eða eitthvað álíka. Þið getið farið að kalla mig "The Knowing One".....eða "The Crazy One" það á kannski betur við.

En já, ég er farin, ég er að deyja úr sígarettulöngun en get ekki lokað fyrr en eftir hálftíma.

L8er!


» 21 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 12:36:35 / paddan

Touching you makes me feel alive and touching you makes me die inside

Ojá, ákvað að hafa eina auðvelda núna eftir þessa "ekki-alveg-jafn-erfiðu-og-ég-hélt-að-hún-yrði" tónlistargetraun síðustu viku.

Eina ferðina enn er ég að vinna, en núna hugsaði ég þó fyrir því að ég kom aðeins fyrr svo þetta verða vonandi fleiri en fjórar málsgreinar.

Ég hef komist að mikilvægri niðurstöðu, sem ég á von á að fá Nóbelæinn fyrir og þakkir margra raunmæddra húsbænda. Í viðtölum við konur á öllum aldri (vinkonur mínar á aldrinum 21-21og1/2 árs) þá hef ég komist að því að hægt er að virkja greddu í húsverk! Ekki furða að allar perfect húsmæður séu svona kynkaldar! Þannig að mitt ráð er: hafið bara allt í drasli (og ég vil ekki sjá eitt einasta komment um ástandið á mínu heimili).

Það er laugardagur, vissuði það? Ég var bara í chillinu í gær. Fór að horfa á video með Heimi og þá komst hann að því að ég hef aldrei séð Underworld. Honum fannst það ekki alveg ganga upp (the vampire-fan I am) svo að hann stökk og leigði hana bara.

Stóóóóór mistök!

Ég hefði getað tuðað stanslaust alla myndina! Djííííses krææææst! Hvað var fólk að pæla? Where to begin, where to begin...

Í fyrsta lagi er ömurleg tónlist í myndinni. Það útaf fyrir sig sökkar, en flottar vampírur hefðu alveg getað bjargað því. En nei, eina flotta við þessar vampírur var Latex-búningurinn sem Serena var í-ásamt kjólnum sem blondínan var í.

Vampírurnar: GÁTU EKKI FLOGIÐ! Er það ekki yfirleitt talinn vera stærsti kosturinn við það að vera vampíra, að geta svifið um loftin blá?! 
Vampírur OG varúlfar: notuðu high teq BYSSUR! Eina sem maður sá þarna af viti var eitt skitið sverð og svo afskaplega lekkert svipur á einum stað. That's it. Reyndar skondið að það voru notuð alveg eins skothylki í allar byssurnar, hvort sem það voru rifflar eða skammbyssur og þá af mismunandi tegundum. 
og hér kemur það sem pirraði mig mest: VAMPÍRURNAR SPEGLUÐUST! ARGH! Ég hefði getað sparkað í mann og annan þegar ég sá það! Er það ekki Rule no.One í Vampíru bransanum að þær speglast ekki?! I BELIVE IT IS!

Bölvað bull!

Og svo þurfti að vera voða rómó ástarsaga og vondi kallinn varð góður og góði kallinn reyndist vera vondur og góði góði kallinn reyndist vera samviskulaust kvikindi og ég veit ekki hvaða og hvaða fyrirsjáanlegu plott voru þarna í gangi.

Reyndar, eitt hrós; það var soldið kúl hvernig þeir blönduðu tegundunum saman, þetta er reyndar svona svipað og ef ég myndi reyna að eignast barn með rollu en HEY! hvað virkar ekki í bíó right?
En tvær pælingar: a)ef að maður blandar saman vampíru og varúlfi og fær út semi human með langar tennur og svartan feld, fær hann þá ekki gallanna frá þeim báðum? Sumsé þolir ekki sól, hvítlauk, holy water og holy symbol og fleyga og hvað og hvað eins og vampírur og ekki silfur eins og varúlfur? og b)Afhverju voru engir kvenmenn varúlfar? Kynjamisrétti í gangi?

Ókei, ókei, búin að tjá mig nóg um þessa sökkí mynd, en núna verð ég að sjá númer tvö-til að athuga hvort að hún sé jafnléleg.:)

Hvað er svona annars að frétta af mér...jah,ekki neitt barasta, aldrei þessu vant. Finn alveg hvernig jólafílingurinn er að læðast upp að mér-en það gæti líka bara verið að mig langi í sígó.

Æji, þetta hraun yfir Underworld fór alveg með mig, hef enga orku lengur:)

En ég er með tilkynningu til allra þeirra sem eru með mér í Order of massive killing osfrv: ÉG VIL FARA AÐ SPILA D&D!  Ég er komin með fráhvarfseinkenni og græt mig í svefn á hverju kvöldi yfir vesalings öflugu köllunum mínum sem að liggja bara og rykfalla og fá ekki að gera neitt af viti-eins og að drepa monsters- og einn þeirra er meira að segja fastur í einhverju heví dungeoni með bölvaðan stein sem á að gera hann geðveikan en hvað? Hvenær fæ ég að vita hvort að hann sé geðveikur? ALDREI!?! Eg er að vera æst hérna:)

en þangað til þetta lið getur farið að koma sér saman þá legg ég bara indexið á öllum bókunum á minnið-eða CR á öllum skrímslum í MM, eða á hvaða blaðsíðu XP-taflan er, eða öll cursed items í DMG eða eitthvað álíka. Þið getið farið að kalla mig "The Knowing One".....eða "The Crazy One" það á kannski betur við.

En já, ég er farin, ég er að deyja úr sígarettulöngun en get ekki lokað fyrr en eftir hálftíma.

L8er!


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 12:57:55 / paddan

They're eyes were open, but still they were blind

Ókei, ef einhver fattar úr hvaða lagi þetta er skal ég persónulega koma með GULLMEDALÍU handa þeirri manneskju!

Ég veit ekki hvort ég eigi að þora að láta sjá mig hérna inni, svo langt er síðan ég bloggaði. Jájá, ég veit. Ég er bloggheiminum til skammar.

En því miður hef ég engan tíma til að hafa bloggið mikið lengra en þetta:) er að vinna og svei mér þá ef ég má barasta ekki loka sjoppunni! Það er snilld að vera að vinna á laugardögum-í tvo tíma:)

En ég loooooofa því að blogga fljótlega, þetta var svona aðalega til að láta ykkur vita af því að ég er enn á lífi-en ekki dáin úr ást, hjartað dælir enn blóði;)

Svona er að vera gjörsamlega dottin úr bloggheiminum:/ I feel so ashamed....

En já, þangað til næst (og það mun EKKI líða svona langt á milli þá)

l8er ppl!


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 08:04:36 / paddan

Taktu mig og farðu í röð. Ég og bíð og sé, hve hún er hröð.

HRUKKA! Ég meina það krakkar, ég er komin með HRUKKU! ARGH! Eigum við eitthvað að ræða hvað ég er að verða gömul *grátur*. Ég vil samt trúa því að þetta sé koddafar.

Aldurskomplexar? Nah...

Ekkert að frétta. Helgin var tómt klúður. Ég samþykkti að vera með stelpurnar fyrir Einar með því skilyrði að hann kæmi og væri með þær á sunnudaginn á meðan ég færi á SigurRósar tónleikana.

Lét hann sjá sig? Nei.    Lét hann heyra í sér? Nei.      Er hann fáviti? Já.

En...lífið er of stutt til að púkka upp á svona...svona...svona...*ritskoðað*.

Mömmuklúbburinn er að missa sig í utanlandsferðina sem við höfum planilagt. Eða...Jóka ber víst hitann og þungan af þessu öllu saman. Hún ætti að vera tónleika haldari or sum því men! gellan er mikið í skipulaginu!

Ferðinni er heitið til London og ég held að þær hafi verið búnar að sættast á að fara í febrúar-eftir miklar deilur! Ég er alveg game í það, langar að fara á Vaxmyndasafnið. Held að það sé bara snilldin eina.

Verslunarmannahelgin að renna upp. Það fer ekki framhjá neinum sem þekkir Rakeli. Hún er ennþá að halda dauðahaldi í það að Eyjar séu kúl og hipp og flott. Sem er ekki satt. En því miður virðist þorri landsmanna vera sammála henni-sem sýnir hversu heimskir Íslendingar virðast vera.

Bara njúka þessar eyjur af kortinu-ég segji það!

Lína er að koma í bæinn á eftir JEIJ! og er planað að fara á kaffihús og tala og reykja okkur í hel eins og okkur einum er lagið. Og já, líka að sjá nýju klippinguna hennar. Hún er bara búin að vera úti í sveit að elta gamla geit (bwahahaha ég er svo fyndin...).

En...látum þessu lokið í bili. Ég verð að fara að vinna. Útborgunardagur á morgun krakkar! Sjibbí! Eða...reyndar fá margir útborgað í dag *öfund* oh well.

Hey, eigum við að koma í keppni hver getur verið ríkastur um mánaðamótin? Ég er til! En þú?

L8er U crazy ppl!


» 15 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 22:50:35 / paddan

Afhverju get ég ekki, lifað eðlilegu lífi? Afhverju get ég ekki, lifað buissness lífi. Keypt mér hús, bíl og íbúð.

Hello you craaaaazy ppl!

Long time no blog! Hefur þetta verið lengsta bloggleysi hingað til hjá Pöddunni en hef ég ærnar ástæður fyrir því. Önnur er sú að paddan gerði the ultimite fórn: lánaði tölvuna sína! Ojá, það var ekki auðvelt en það tókst þó og er ekki laust við að paddan hafi fundið fyrir örlitlum fráhvarfseinkennum á meðan á tölvuleysinu stóð. En ekki getur paddan (sem finnst aaaafskaplega gaman að tala um sjálfan sig í þriðju persónu) kennt tölvuleysinu um allt því paddan hefur nýlega tekið upp á því að fara snemma að sofa. Við erum að tala um 10 á kvöldin krakkar!

Já, því sem vinnandi manneskja er ég afar þreytt á kvöldin. En þetta er að lagast eftir því sem ég venst vinnunni. Ég er að segja ykkur það krakkar, að I have found my calling. Þetta er bara skemmtileg vinna. Bara gaman að því:)

En hvað er að frétta? Ekkert! Jah, það er nottla búið að standa yfir þessi venjulegi skammtur af drama í kringum mig en ekki nenni ég að rifja þau ósköp öll upp. ég er ekki alveg að fíla þessa nýjung, að ég sé að verða dramadrottningin. Ég sem hata drama virðist vera komin með einhvern segul á mig!

Hvað meir, hvað meira....

Kannski skemmtilegt að segja frá því að ég meðan er ég að skrifa þetta er ég að keyra austur í Grímsnes þar sem ég mun dvelja yfir helgina í sumarbústað foreldra minna. Í þessum skrifuðum orðum er ég að keyra niður Kambana (bíddu nú við, var það ekki Harpa sem vissi ekki hvar Kambarnir voru? Svo er sagt að ég sé léleg í landafræði) og tölvan sveiflast fraaaam og til baka, fraaaam og aaaftur.... Bíðið aðeins meðan ég gubba af bílveiki...

Var reyndar með gubbuna í gærnótt og í morgun. Og hafði ekki gaman af.

Og núna tekur við "afslöppun". Með öðrum orðum sagt: leiðindi. Allir sem þekkja mig vita að ég er borgarbarn alveg í gegn og út hinum megin og finnst mér svona fjölskylduferðir ekki beint skemmtilegar. En ég tók tölvuna með svo að þetta ætti að sleppa. Svo er Gugga og familí líka í Heiðarbýlinu svo að maður getur kannski gabbað liðið með sér í Pictionary (en þar er ég ávalt óumdeildur sigurvegari) og þá verður kannski eitthvað um skemmtilegheit.

Hmm...annað helst í fréttum er að Heiðar er kominn aftur til landsins. Og finnst mér það ákaflega skemmtilegar fréttir enda er félaginn alveg óborganlega skemmtilegur. Eða...hann var það þegar að hann fór út. Vona að Danaveldi hafi ekki breytt honum mikið. Leyfi mér að stórefast um það.

Anyways...good bye. Nenni ekki að bæta við þetta núna þegar ég er loksins komin í bæinn. Barasta VAR að ganga inn úr dyrunum.

Lofa að koma með blogg fljótlega:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 17:13:29 / paddan

Must be a devil, between us or horse in my head. Horse, doors, whore in my bed.

Hann er kominn! Hann er kominn! Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn! Jah, hann er amk kominn til landsins en vegna óviðráðanlega ástæðna hittumst við ekki fyrr en í kvöld. Meeeen hvað mig hlakkar til en svei mér þá ef það er ekki smá kvíðahnútur í maganum á mér, vegna ýmiss konar ástæðna sem ég ætla mér ekki að fara útí núna:) Ég er komin með vinnu-nota bene. Veit einhver hvað varð um alla valmöguleikana? Það er allt bara blank hérna. Funky shit. Oh well...over and out. P.S. Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn!Hann er kominn! Hann er kominn! :haha: :D :haha:

» 20 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 14:04:10 / paddan

Á morgun, á morgun alltaf sagt...

ójá krakkar. Bráðum losniði við tuðið í mér því Mer...Hnefill kemur á morgun!!

Og svo fékk ég bréf í dag:

Ég komst inn í FB!

Eintóm gleði og hamingja!


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Leitarbox